07maí

tékkið

Athugið þessa síðu fyrir mig .... www.123.is/okkar
07. maí 2007 klukkan 23:20
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
1 athugasemd
26apríl

mæli ekki með því að þessi færsla verði lesin ...

Var að pæla í því hve lífið flýtur bara framhjá manni ...

Núna erum við hjúin búin að vera vinnandi eiginlega stanslaust frá áramót og það eru eiginlega engar svona stórar minningar sem við eigum frá þeim tíma. Það sem stendur eiginlega uppúr er afmælið hans og svo páskarnir ... og jú, fæðingin hennar Viktoríu Sólveigar og svo sú tilkynning hjá Unni að það væri að koma barn þar :D Annars er eiginlega ekkert og svo þegar maður hugsar út í það að þá er eiginlega allt lífið manns þannig þegar maður er búinn að finna ástina og farinn að setjast niður. Ég er alls ekki að segja að þetta sé eitthvað neikvætt. Mér finnst bara að fólk ætti að fá meiri frítíma (hærri laun hjá öllum þar af leiðandi ef landið á að haldast  svona rosalega dýrt) og þessi frítími á að fara í það að gera eitthvað minnisstætt. Líklega er ég svoldið fúl út af því að tíminn flýgur fram hjá manni án þess að maður taki eftir því. Maður þyrfti að gera eitthvað nýtt einu sinni í mánuði, svona til þess að maður sé sáttur við það líf sem maður er að lifa.

Veit ekki afhverju ég er að babla þetta ... ætla bara í sturtu
26. apríl 2007 klukkan 23:37
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
5 athugasemdir
20apríl

Who wants hot kebab ?

Jæja, það er víst komið tími á eitthvað smá skrifelsi ... kallinn var að skamma mig fyrir það að ég væri ekkert búin að blogga undanfarið. Þannig að ég ætla að skella eitthverju niður.

Maður er kominn í góðan sumarfíling eftir daginn í gær, sumardaginn fyrsta. Geggjað veður. Ég hélt nú reyndar að það væri bara að fara að koma heimsendir seinasta vetrardaginn, þ.e. bruninn og hitavatnsæðin. Burn partý á Pravda eins og Andri sagði, Bjössi sagði reyndar við mig um leið og ég kom heim og sá þetta í sjónvarpinu "Viltu heitan kebab?". Ég efast ekki um það að það eru milljón brandarar um þetta efni farnir að ganga um, svo miklir húmoristar þessir Íslendingar.

Ég dustaði rykið af hjólinu á þriðjudaginn og hjólaði frá pabba (miðbæ Rvk) og heim (Kóp) og var satt að segja að drepast í rassgatinu eftir þessa ferð. Mér líður eins og ég hafi verið flengd svo ærlega með spýtu að spýtan endaði inni í rassinum .... (ath. rasskinnunum en ekki gatinu sjálfu ef einhver var farinn að sjá eitthvað afskaplega kinki fyrir sér, maður verður að hafa allan varan á). En maður ætlar að fara að vera duglegri að hjóla núna ... mun líklega hjóla alltaf í vinnuna núna í staðinn fyrir að labba, maður er aðeins fljótari. Mér finnst líka taka aðeins meira á að hjóla.

Við skötuhjúin fórum í afmæli til Unnar í gærkvöldi, hún varð 23 ára skvísan. Í dag er hún á leiðinni til Frankfurt í verslunarferð (kemur líklega heim með fulla tösku af barnafötum enda eitt á leiðinni). Um helgina ætlum við hjúin að fara upp í sveit ... algjör sæla þar alltaf. Svo ætlum við líka að fara í stutt afmæli hjá ömmu í Laxárdal, hún verður áttatíu ára á morgun, og ennþá eldhress. Hlakka til að komast austur ...

Jæja, þá ætla ég að fara að koma mér í vinnu ... adios
20. apríl 2007 klukkan 08:29
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
4 athugasemdir
31mars

Tónleikar í nánd ... :D

Eins og mínir flestir nánustu vita að þá er Josh Groban minn eftirlætis söngvari ... og þegar ég vissi að hann væri að fara að koma til Íslands að þá gjörsamlega missti ég mig af kátínu! og talaði ekki um annað í nokkra daga og eins og Bjössi sagði "Eina karlmannsnafnið sem ég hef heyrt nefnt á þessu heimili er Josh Groban þetta og Josh Groban hitt, ég er hissa ef ég heyri nafnið mitt". Þannig að ég varð að komast á tónleikana og vitiði hvað ... ég er komin með miða á þá og er í skýjunum. Systir hans Bjössa, Jónína, keypti þá fyrir okkur í mastercard forsölunni Hlæjandi Og núna er ég farin að segja á hverjum degi hve langt er í tónleikana ... híhí ... ég er heppin ef Bjössi gefst ekki upp á mér Glottandi

En ég hef ekki meira að segja í bili (einn og hálfur mánuður í Josh Groban ... )
Kv. Hilja
31. mars 2007 klukkan 11:42
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
3 athugasemdir
27mars

Nýjar myndir :D

Nýjar myndir eru komnar inn .. síðan úr partýinu á föstudagskvöldið.

Annars var rosalega gaman um helgina ... fullt af partýstandi. Það varð allt í einu fullt af fólki hérna á föstudagskvöldið og rosa stuð fram eftir nóttu. Á laugardagskvöldið var svo farið í afmæli til Gunnhildar sem varð tvítug, algjör gellz. Eftir afmælið hennar kíktum við skötuhjúin með Ínu og Haffa niður á pravda. Síðan var það bara leti ...
27. mars 2007 klukkan 19:00
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
2 athugasemdir
10mars

Blóðugur snjór ....

Er ein heima eins og er, Bjössi er með bróður sínum á sýningunni Hvanndalsbræður (eða eitthvað álíka). Ég upplifði það áðan, eftir að ég var búin að skutla Bjössa í Þjóðleikhúskjallarann, að það var algjör þögn. Ég stóð fyrir utan húsið okkar og horfði á risa stór snjókorn falla til jarðar og það var algjör þögn. Ég upplifði svo mikla ró að ég hef sjaldan fundið annan eins frið innra með mér.

Verð reyndar að koma á framfæri svolitlu sem hefur farið svoldið í taugarnar á mér undanfarið, eftir að ég heyrði það í fréttunum. En það var frétt um stelpu sem hafði verið misnotuð og rétturinn dæmdi henni 800 þúsund krónur í bætur auk sakarkostnaðar og barnaníðingurinn þurfti einnig að sitja inni í örfáa mánuði ... það sem mér finnst hneykslanlegt er að hún er að fá um 100 þús krónur meira en Bubbi fékk í bætur fyrir að hafa verið sagður fallinn, af tilteknu tímariti. Svo ekki sé minnst á fangelsisdóminn sem maðurinn hlaut ... allt of stuttur. Menn sem ræna sjoppu einu sinni fá mun hærri dóm en maður sem hefur gjörsamlega eyðilagt líf einnar manneskju og manneskjan er heppin ef hún nær sér eitthvern tíman á strik. Mér finnst dómurinn endurspegla hversu mikils virði þeir telja fórnarlambið vera og mannslíf hlýtur að vera meira virði en þetta ... Ohh, þetta dómskerfi hér á Íslandi fer svo í taugarnar á mér að það hálfa væri hellingur ! Það ætti að fara að stokka aðeins upp í þessu kerfi ... þetta er ekki að ganga svona.

Það er ekki hvítur snjór sem fellur þessa stundina heldur blóðugur snjór.

Ég kveð að sinni ... Hilja
10. mars 2007 klukkan 00:56
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
2 athugasemdir
26febrúar

Ég er svo innilega ekki dugleg ...

Jahérna hér ... við skötuhjúin erum ekki dugleg við að blogga ...

En allavega ég er víst að skrifa eitthvað núna.
  • Við erum geðveikt ánægð með bílinn okkar, gaman að keyra hann.
  • Ég á bara eftir að vinna eitt kvöld í sælgætis og videohöllinni ...
  • Ég er búin að sækja um í Kennaraháskóla Íslands.
  • Mér finnst yndislegt að vinna á leikskóla ... þarf samt eitthvað sem er skrefi ofar, því held ég að ég sé að gera rétta ákvörðun með því að fara í Kennó (ef ég kemst inn, sjö níu þrettán)
  • Við skötuhjúin erum ennþá eins og ástfangnir unglingar, eftir eiginlega ár í sambúð, eftir tvær vikur erum við búin að búa saman í heilt ár ... þetta er ekkert smá fljótt að líða.
  • Næst er bara að koma með krakkann ... er að spá í að fæða hann þannig að hann komi út sem 15 ára barn :D Híhíhí
  • Ég er einnig búin að sækja um endurtekningu í prófi í Íslandssögunni og ætla að reyna að ná þessu í þetta skiptið, prófið er í sumar.
  • Og hey ... ég er líka búin að blogga Hlæjandi I deserve some credit for that!
  • Ég hafði þetta svona stutt og laggott því að ég nennti ekki að skrifa risa mikið heilt mál ... en ég ætla samt sem áður að kveðja núna ...
Kv. Hilja
26. febrúar 2007 klukkan 18:19
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
6 athugasemdir
08febrúar

Hellú

Góðar fréttir landar mínir ...

Ég og Bjössi keyptum okkur nýjan bíl ... geðveikt flotta skoda octaviu, steingráa 2005 árgerð. Mikið afskaplega er gott að vera komin á góðan bíl sem ekki bilar þriðja hvern mánuð !

Kv. Hilja
08. febrúar 2007 klukkan 18:02
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
4 athugasemdir
23janúar

ÚJE

Ókey ... hversu flott var þetta hjá strákunum okkar ... að vinna fokkin frakkana ?! Þetta var líklega ein af bestu afmælisgjöfum sem Bjössi hefur fengið, en hann á afmæli í dag. Hann varð 25 ára gamall (þó að hann vilji ekki viðurkenna það sjálfur). Hann hélt upp á það með pompi og prakt um helgina með því að leigja tvo bústaði. Fullt af fólki kom og fagnaði þessum merkilega áfanga með honum (og mér). Það var mikið drukkið, mikið sungið og mikið dansað ... Bjössi vel í glasi, svo að ég komi því að, híhí.

Langamma mín dó á laugardagskvöldið og jarðaförin verður næstu helgi. Það var svoldið erfitt að meðhöndla þessar fréttir en maður verður að hugsa um þetta frá því hugarfari að þetta var það sem hún óskaði sér. Hún var búin að vera veik í rúm 10 ár og vildi aldrei upplifa þennan sjúkdóm. Það bara rifjuðust upp svo margar minningar sem maður átti um hana.

En alla vega ... þessi nýja vinnuvika byrjar unaðslega vel með þessum GEÐVEIKA sigri Íslendinga ... ég fer alla vega alsæl í rúmið.

Kv. Hilja
23. janúar 2007 klukkan 02:55
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
6 athugasemdir
06janúar

Tveir gullhringir :)

Jæja ... er ekki kominn tími á eitt blogg eða svo ... ? svoldið langt síðan að ég skrifaði seinast. En allavegana, jólafríið var æðislegt. Við eyddum Þorláksmessu og aðfangadag uppi á skaganum hjá fjölskyldu Bjössa. Við settum einnig upp hringa Hlæjandi á aðfangadagsmorgun. Fékk margar æðislegar gjafir og einnig fengum við tvö saman fullt af góðum gjöfum, eins og ryksugu ... sem okkur er búið að vanta síðan að við fluttum inn, búin að vera með ryksugu í láni frá Soffíu, systur Bjössa. Síðan fórum við til ömmu í Laxárdal á jóladag og úðuðum í okkur kökum, leiðin lá svo til mömmu og Bikka á Hæli. Þetta var yndislegt letilíf. Ég þurfti svo að vinna á miðvikudagskveldi milli jóla og nýárs, hálf furðulegt.

Svo kom gamlárskvöld og við borðuðum dýrindismáltíð hjá pabba og við fórum síðan upp að Perlu þegar nýja árið var að fara að ganga í garð. Síðan var farið í partý til Birgittu og Andreu, sem var ansi fjörugt.

Síðan fór vinnan að taka við. Ég byrjaði að vinna að leikskóla nú í byrjun ársins, æðislegt að vinna þar.

Allavega ... Bjössi mjög þunnur núna , hehehehe. Vorum með smá spilakvöld í gærkvöldi. Harpa Sif vinkona kom og vinur hans Bjössi, Gunni, komu að spila með okkur og það var skemmtilega mikið drukkið hjá strákunum.

ég ætla að hætta þessu bulli og fara að koma mér í sturtu, þvo af mér skítinn ...
06. janúar 2007 klukkan 22:59
Hildur Lilja Guðmundsdóttir
5 athugasemdir

Lífsspeki

Besti vinurinn sem við þekkjum er sá sem þekki galla okkar og er samt vinur okkar.

Ber er hver að baki nema bróður eigi. (Njála)

Að óttast ástina er að óttast lífið og sá sem þorir ekki að lifa er dauður að mestu.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit